Dómurinn staðfesti að kerfið sé ómannúðlegt

Drífa segir það ógnvekjandi að „hin ósýnilegu störf“ séu slitin …
Drífa segir það ógnvekjandi að „hin ósýnilegu störf“ séu slitin úr samhengi við manneskjur og velferð þeirra. Ljósmynd/ASÍ

„Það vita það allir sem töluðu við þá Rúmena sem unnu hjá Menn í Vinnu að þar var pottur brotinn. Ég fylgdist vel með í upphafi og ræddi ítarlega við þá sem leituðu aðstoðar. Hvað sem öðru líður þá var það ljóst fyrir mér að þeir voru þolendur þess ómannúðlega kerfis sem við höfum rekið okkar samfélag á síðustu árin,“ skrifar Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands í pistli sínum. 

Hún vísar þar til dómsmáls Eflingar gegn starfsmannaleigunni Mönnum í vinnu. Niðurstaða dóms­ins var að vísa frá öll­um kröf­um á hend­ur Eld­um rétt og þrota­búi Manna í vinnu og sýkna fyrr­ver­andi stjórn­end­ur Manna í vinnu. Málið var rekið með aðstoð Efl­ing­ar, en starfs­menn fé­lags­ins höfðu meðal ann­ars gert marg­vís­leg­ar at­huga­semd­ir við upp­gjör launa og aðbúnað starfs­fólks­ins.

Þekking og færni „kerfisbundið vanmetin“

Í pistlinum segir Drífa að samfélagið hafi „aldrei risið undir þeirri ábyrgð sem felst í því að taka á móti erlendu fólki á íslenskum vinnu- og húsnæðismarkaði.“ Þannig vill Drífa meina að samfélagið ætli erlendu fólki lægst launuðu störfin, erfiðustu störfin og lélegasta aðbúnaðinn.

„Þekking þeirra, færni og menntun er kerfisbundið vanmetin og dæmi eru um atvinnurekendur sem halda frá erlendu launafólki upplýsingum um réttindi þeirra og greiða þeim jafnvel ekki laun í samræmi við kjarasamninga. Eins og komið hefur fram í fundaröð ASÍ, SGS og Eflingar í vikunni búum við í heimi þversagna. „Vinnuaflið“ á að vera hreyfanlegt og aðlaga sig en samfélag okkar er ekki hreyfanlegt eða tilbúið til að aðlaga sig,“ skrifar Drífa og heldur áfram:

„Til dæmis byggðum við upp heilan ferðamannaiðnað með mikilli opinberri stefnumótun án þess að fjalla um starfsfólkið sem bar uppi þessa þjónustu. Hvaðan það ætti að koma og hvernig við gætum staðið sem best að því? Dómurinn sem féll í vikunni er staðfesting á því að kerfið okkar er laskað og ómannúðlegt hvort sem dómarar telja það rúmast innan laganna eða ekki.“

Störfin slitin úr samhengi við fólkið

Drífa segir það ógnvekjandi að „hin ósýnilegu störf“ séu slitin úr samhengi við manneskjur og velferð þeirra.

„Annað öskrandi dæmi um þetta birtist okkur í vikunni þegar ræstingafólki og starfsfólki þvottahúss á Heilbrigðisstofnun Suðurlands var sagt upp störfum. Farið var í útboð á ræstingunni til að hagræða og var „kostnaður langt undir kostnaðaráætlun“. Það þýðir á mannamáli að starfsfólkið sem sinnir ræstingu og þvottum fær lægri laun og/eða býr við minna öryggi. Fjögur stéttarfélög á Suðurlandi hafa bent á að þetta séu kaldar kveðjur frá yfirstjórn stofnunarinnar og vægast sagt lítilsvirðing við störf þessa hóps sem hefur verið í framlínunni á tímum heimsfaraldurs. Ég tek undir af heilum hug og ætlast til þess að opinberar stofnanir eins og aðrir atvinnurekendur hugsi um launafólk sem manneskjur, ekki eingöngu vinnuafl,“ skrifar Drífa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert