Öflugur skjálfti 5,2 að stærð

Horft í átt að Keili af höfuðborgarsvæðinu. Skjálftarnir eiga upptök …
Horft í átt að Keili af höfuðborgarsvæðinu. Skjálftarnir eiga upptök sín skammt frá fjallinu. mbl.is/Hari

Öflug­ur skjálfti reið yfir suðvest­ur­horn lands­ins klukk­an 8:07 og fannst hann víða á Suður- og Suðvesturlandi, austur að Skógum og norður að Hvanneyri. Fleiri eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, sá stærsti 4,0 að stærð en alls hafa að minnsta kosti níu skjálftar yfir 3 að stærð mælst frá klukkan 8:07 samkvæmt mælingum veðurstofu. 

Er skjálftinn sá stærsti sem orðið hef­ur frá því í gær. Stærsti skjálftinn sem mældist í nótt var 3,8 að stærð. 

Samkvæmt náttúruvárvöktun Veðurstofu Íslands var skjálftinn 5,2 að stærð, en fyrstu mælingar bentu til þess að hann hefði verið um 4,8 að stærð. Skjálftinn er með stærri eftirskjálftum sem hafa orðið frá því að skjálfti að stærð 5,7 hóf hrinuna á miðvikudagsmorgun. 

Alls hafa um 600 skjálftar mælst frá miðnætti. 

Jarðskjálft­inn núna átti upp­tök sín um 2,2 kíló­metra norðaustur af Fagradalsfjalli samkvæmt náttúruvársérfræðingi. 

Kl.08:07 varð jarðskjálfti 5,2 að stærð, um 2.5 km NA af Fagradalsfjalli. Fjöldi eftirskjálftar hafa mælst. Stærsti...

Posted by Veðurstofa Íslands on Laugardagur, 27. febrúar 2021

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert