Eitt smit á landamærum og ekkert innanlands

Sýnataka vegna Covid-19 fer fram við Suðurlandsbraut.
Sýnataka vegna Covid-19 fer fram við Suðurlandsbraut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekkert kórónuveirusmit greindist innanlands í gær sam­kvæmt bráðabirgðatöl­um sem Hjör­dís Guðmunds­dótt­ir, sam­skipta­stjóri al­manna­varna­deild­ar rík­is­lög­reglu­stjóra, lét mbl.is í té. Eitt smit greindist á landamærunum. 

Eitt smit greindist innanlands og eitt á landamærunum í fyrradag. 

Síðast greind­ist ein­hver utan sótt­kví­ar 1. fe­brú­ar en þá höfðu liðið 12 dag­ar frá því síðustu smit utan sótt­kví­ar voru greind hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert