Leitast við að leysa mál einstakra lækna

Skurðlæknar að störfum. Flest­ir lækn­ar þurfa að sækja sitt sér­nám …
Skurðlæknar að störfum. Flest­ir lækn­ar þurfa að sækja sitt sér­nám utan land­stein­anna. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Málefni íslenskra sérnámslækna í Noregi sem útlit er fyrir að þurfi að endurtaka kandídatsár sitt eru í forgangi hjá heilbrigðisráðuneytinu hér á landi. Málið er til umfjöllunar í vinnuhópi og er markmið hans að vinna sem skjótast að lausn þess. Þá verður leitast við að leysa mál einstakra lækna sem eru í vandræðum vegna stöðunnar.

Þetta kemur fram svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is.

mbl.is greindi frá því í síðustu viku að ís­lensk­ir sér­náms­lækn­ar sem stunda sér­nám í Nor­egi sjái fram á að þurfa að end­ur­taka kandí­dats­árið sitt vegna breyt­inga á skipu­lagi lækn­is­náms þar í landi. Útlit er fyr­ir að sama staða komi upp fyr­ir ís­lenska sér­náms­lækna í Svíþjóð inn­an tíðar. 

Í viðtali við mbl.is kallaði Ragn­heiður Vern­h­arðsdótt­ir sér­náms­lækn­ir eft­ir aðgerðum frá stjórn­völd­um. Þá sagði hún að staðan geti haft veru­leg áhrif á ís­lenskt heil­brigðis­kerfi.

Gera tillögu fyrir heilbrigðisráðherra innan skamms

„Málið sem spurt er um er til umfjöllunar í vinnuhópi sem heilbrigðisráðherra skipaði til að endurskoða reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi,“ segir í svari ráðuneytisins. 

Þar kemur fram að innan skamms muni hópurinn gera tillögu til heilbrigðisráðherra um hvernig fella megi fyrirkomulag við veitingu læknaleyfis og skipulag kandidatsárs að því sem tíðkast hjá grannþjóðum og öðrum löndum þar sem íslenskir læknar leita í sérnám.

Norska ráðuneytið útilokaði möguleika á undanþágum

„Leitast verður við að leysa málefni einstakra lækna sem lenda í millibilsástandi vegna núverandi stöðu með viðræðum við þar til bær stjórnvöld í Svíþjóð og Noregi þar sem mál eins og nefnd eru í fyrirspurn þinni hafa komið upp,“ segir jafnframt í svari ráðuneytisins. 

Í svari norska heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is sem greint var frá í gær kom fram að túlk­un ráðuneytisins á lög­um um starfs­rétt­indi heil­brigðis­stétta úti­loki mögu­leik­ann á því að ís­lensk­ir sér­náms­lækn­ar geti sloppið við að taka áfangann LIS1 í upphafi sérnáms, en LIS1 er sambærilegur íslensku kandídatsári sem allir læknanemar hérlendis undirgangast áður en þeir fara í sérnám.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert