Ók Reykjanesbrautina á 159 km hraða

mbl.is/​Hari

Tuttugu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum frá föstudegi og yfir helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 159 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. Hans bíður sekt upp á 230 þúsund og svipting ökuleyfis í tvo mánuði, auk þess sem hann fær þrjá punkta í ökuferilsskrá.

Tveir 17 ára piltar voru meðal þeirra sem óku of hratt og var haft samband við forráðamenn þeirra vegna málsins. Einn ökumaður var jafnframt grunaður um ölvunarakstur samkvæmt tilkynningu frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Skráningarnúmer voru fjarlægð af fjórum ótryggðum bifreiðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert