Ferlið tekið 24 mánuði innan ráðuneytisins

Kvikmyndaskóli Íslands.
Kvikmyndaskóli Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Kvikmyndaskóli Íslands, sem verður 30 ára á næsta ári, hóf starfsemi nú á vorönn 2021 sem háskóli í viðurkenningaferli, eftir að hafa allt síðasta ár unnið að skipulagsbreytingum og gagnavinnslu vegna háskólayfirfærslunnar.

Skólinn fylgir ferli sem hófst með nýjum þjónustusamningi sem gerður var við skólann í júlí 2019. Þar komu fram áform Kvikmyndaskólans um háskólayfirfærslu. Í janúar 2020 var síðan lögð inn formleg umsókn um háskólayfirfærslu til menntamálaráðuneytis. Alls koma um 80 manns að stjórnum, nefndum og ráðum skólans en formaður fagráðs, sem er væntanlegt háskólaráð, er Katrín Dóra Þorsteinsdóttir sem lengi var yfir fræðslumálunum hjá Samtökum iðnaðarins. Rektor er Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri.

Samkvæmt háskólalögum ber ráðherra að fá umsögn þriggja óháðra sérfræðinga áður en háskólaviðurkenning er veitt. Kvikmyndaskólinn hefur verið tilbúinn að taka á móti sérfræðingahópi síðan í september 2020. Áætlanir og óskir Kvikmyndaskólans til ráðuneytis er að sérfræðingarnir ljúki vinnu sinni ekki síðar en í júní næstkomandi, þannig að formleg viðurkenning geti legið fyrir eigi síðar en í upphafi haustannar. Felið hefur þá tekið 24 mánuði í ráðuneytinu, að því er segir í tilkynningu frá Kvikmyndaskólanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert