Sýna verðmætt filmusafn frá upphafsárum Reykjavíkur

Sigurhans Vignir skildi eftir sig ríflega 40 þúsund myndir.
Sigurhans Vignir skildi eftir sig ríflega 40 þúsund myndir. Ljósmynd/Sigurhans Vignir

Hið þögla, en göfuga mál er yfirskrift 40 ára afmælissýningar Ljósmyndasafns Reykjavíkur sem opnuð verður laugardaginn 6. mars. Á sýningunni verða verk eftir Sigurhans Vignir sem starfaði sem ljósmyndari á árunum 1917 til 1965. Að ósk afkomenda er ættarnafnið Vignir ekki fallbeygt.

Hann starfaði lengst af í Reykjavík og skildi eftir sig verðmætt filmusafn sem varðveitt er á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í safninu eru rúmlega 40 þúsund myndir, flestar teknar á árunum 1940 til 1965.

Margar þeirra mynda eru afar áhugaverðar heimildir um mannlíf og uppbyggingu samfélagsins á fyrstu áratugum lýðveldisins, segir í tilkynningu.

Vignir starfaði sem ljósmyndari frá 1917 til 1965.
Vignir starfaði sem ljósmyndari frá 1917 til 1965. Ljósmynd/Sigurhans Vignir

„Á löngum starfsferli sínum sem ljósmyndari tók Vignir að sér margbreytileg verkefni en það sem sameinar þau flest er fjölskrúðugt atferli manneskjunnar frá vöggu til grafar. Hann myndaði verkafólk við vinnu, presta skíra börn, hernám á hlutlausu þjóðríki, brúðkaup og afmæli ýmiss konar, skautahlaup, fegurðarsamkeppni í Tívolí, hárkollugerð og stofnun lýðveldis, svo fátt eitt sé nefnt.“

Þá tók Vignir einnig myndir fyrir Reykjavíkurborg og þykja þær margar mikilvægar heimildir um starfsemi sveitarfélagsins, sögu þess og þróun. Vignir var einnig leikhúsljósmyndari og tók myndir fyrir bæði Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur.

Sýningin er opin alla daga og stendur til og með 19. september næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert