Í dag er útlit fyrir suðaustangolu eða -kalda sunnan heiða með dálítilli rigningu eða slyddu og bætir í úrkomu eftir hádegi. Hiti 1 til 6 stig. Á Norður- og Austurlandi verður hægviðri og þurrt að mestu framan af degi en síðdegis má búast við að þykkni upp með slyddu eða snjókomu og í kvöld bætir einnig í vind á þessum slóðum og hiti um frostmark.
Á morgun er spáð suðaustanstrekkingi með suður- og vesturströndinni og rigningu eða slyddu af og til en hægari og þurrt að kalla í uppsveitum. Á Norður- og Austurlandi léttir til og verður víða vægt frost þar.
Skemmst er frá því að segja að á fimmtudag og föstudag er spáð aðgerðalitlu veðri, fremur hægur vindur og lítil eða engin úrkoma á landinu segir enn fremur í hugleiðingum veðurfræðings.
Veðurhorfur í dag og næstu daga
Suðaustan 3-10 m/s og dálítil rigning eða slydda sunnan- og vestanlands, bætir í úrkomu eftir hádegi. Hægviðri og þurrt á Norður- og Austurlandi, en þykknar upp með slyddu eða snjókomu síðdegis og gengur í norðaustan 8-15 þar í kvöld. Hiti 1 til 6 stig, en kringum frostmark fyrir norðan og austan.
Suðaustan 8-13 m/s á morgun á Suður- og Vesturlandi og lítils háttar rigning eða slydda. Hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi, bjartviðri og frost 0 til 5 stig.
Á miðvikudag:
Suðaustan 8-13 m/s á Suður- og Vesturlandi og dálítil rigning eða slydda, einkum við ströndina. Hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi, bjartviðri og frost 0 til 5 stig.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt 3-10. Skýjað á landinu og lítils háttar væta við suður- og vesturströndina. Hiti 0 til 6 stig, mildast við sjóinn.
Á föstudag:
Fremur hæg sunnanátt og víða bjart veður, en skýjað og dálítil rigning um tíma suðvestan til á landinu. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Austlæg átt, rigning með köflum og hiti 1 til 5 stig, snjókoma eða slydda um tíma á norðanverðu landinu og vægt frost.
Á sunnudag:
Hæg suðlæg átt og dálítil væta, en þurrt að kalla norðanlands. Hiti 1 til 6 stig.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með slyddu eða snjókomu norðan- og austanlands, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Kólnandi veður.