Viðbragðstími lögreglu í hvarfi Birnu skoðaður

Minningarstund um Birnu Brjánsdóttur í janúar 2017.
Minningarstund um Birnu Brjánsdóttur í janúar 2017. mbl.is/Kristinn Magnússon

Viðbragðstími lögreglu og samskipti hennar við fjölmiðla í tengslum við hvarf og andlát Birnu Brjánsdóttur í janúar árið 2017 er til skoðunar hjá nefnd um eftirlit með störfum lögreglu.

Skúli Þór Gunnsteinsson, formaður nefndarinnar, segir að verið sé að skoða hvernig verklagi hafi verið fylgt þegar hvarfið var tilkynnt og þá hvort viðbragðstími hafi verið eðlilegur. „Skiptir máli hver það er sem kemur og tilkynnir hvarf? Fer viðbragðstími eftir því? Þetta er bara það sem við munum skoða og höfum í raun ekki gögn núna til þess að styðjast við og vitum ekkert nánar um málið eins og sakir standa,“ segir Skúli.

Gögn málsins hafa borist nefndinni. Að sögn Skúla barst annars vegar beiðni frá einstaklingi „úti í bæ“ um skoða samskipti lögreglu við fjölmiðla í málinu. Hins vegar barst kvörtun frá aðstandendum Birnu sem vildu láta kanna verklagsreglur varðandi viðbragðstíma lögreglu.  

Til­mæli nefnd­ar­inn­ar eru ekki bind­andi en líkt og er með umboðsmann Alþing­is t.a.m. er hefð fyr­ir því að farið sé eft­ir fyr­ir­mæl­um henn­ar. Þegar nefnd­in fær kvört­un til sín er hún yf­ir­far­in og gögn skoðuð. Ef kvört­un­in er til­hæfu­laus, þá er mál­inu lokið en ef kvört­un sé það ekki er málið sent áfram til viðkom­andi lög­reglu­stjóra til meðferðar og jafn­vel send óbind­andi til­mæli, tel­ji nefnd­in til­efni til. Síðan fylg­ist nefnd­in með því að málið sé af­greitt hjá viðkom­andi lög­reglu­stjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert