Óróapúls hófst suður af Keili, við Litla-Hrút, um kl. 14.20 í gær. Slík merki mælast í aðdraganda eldgosa.
Ekki hefur þó orðið af eldgosi enn. Fylgst er með þróun mála hér fyrir neðan beina útsendingu mbl.is af Keili.
Sendu okkur myndir eða myndskeið úr þínu nærumhverfi á netfrett@mbl.is eða með skilaboðum á Facebook-síðu mbl.is
4.3.2021
Landsnet segir að unnið sé að sviðsmynd sem snúi að því að reka Reykjanesskaga sem orkulega sjálfbæra einingu.
4.3.2021
Yfirlit yfir eldsumbrot á Reykjanesi frá um 800 og hraun sem runnu.
4.3.2021
Sóley Bergsteinsdóttir stúderar stórslysamyndina Dante´s Peak.
4.3.2021
Ragnar Eyþórsson hrærir í fimmaura brandara í tilefni mögulegs eldgoss.
4.3.2021
Fyrsta myndin sýnir virkni síðustu 6 klst. Myndin í miðjunni sýnir virkni síðasta sólarhring og myndin lengst til hægri sýnir virkni síðustu vikuna. Þróunin síðustu klukkustundir hefur verið í suðvestur átt.
4.3.2021
Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og uppistandari, er svartsýnn í tísti sínu um mögulegt eldgos.
4.3.2021
Starfsmenn Veðurstofunnar virðast mættir á vettvang, en sjá má bifreið þeirra á vefmyndavél mbl.is sem er í nágrenni Keilis.
4.3.2021
Eiríkur Jónsson tístir um væntingastjórnun og mögulegt eldgos.
4.3.2021
Haukur Viðar Alfreðsson veltir fyrir sér undirlagi húsa vegna jarðskjálftanna á Reykjanesskaga.
4.3.2021
Þessi tístari vill losna við gamlan hring og vísar þar í Hringadróttinssögu.
4.3.2021
Björn Reynir tístir um leiðinlegasta vinnudaginn sinn á DV árið 2011.
4.3.2021
Fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson tístir um stöðu mála á Reykjanesskaganum:
4.3.2021
Tíst frá Veðurstofu Íslands um jarðskjálftann laust fyrir klukkan 9 í morgun, sem mældist 4,5 að stærð.
4.3.2021
Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN hefur birt frétt um jarðskjálftana á Íslandi og mögulegt eldgos.
Þar er meðal annars rætt við Auði Ólafsdóttur, sem býr í Reykjavík, og Pál Val Björnsson, kennara og varaþingmann.
4.3.2021