Sigurður Nordal nýr sviðsstjóri stjórnsýslu

Sigurður Nordal er nýr sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Sigurður Nordal er nýr sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar. Ljósmynd/Aðsend

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Sigurð Nordal í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs en 30 manns sóttu um stöðuna. Á árinu 2020 starfaði Sigurður tímabundið við ráðgjöf og aðstoð við stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar og vann þar m.a. að mikilvægum fjárhagslegum greiningum og úttektum. Sigurður mun hefja störf í mars. 

Hann tekur við starfinu af Sigríði Kristinsdóttur sem skipuð hefur verið í embætti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður nam hagfræði við Háskóla Íslands og Columbia-háskóla í New York. Hann starfaði hjá Seðlabanka Íslands, bönkum og fjármálafyrirtækjum í ýmsum ábyrgðarstörfum um sextán ára skeið. Sigurður var framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands við flutning hljómsveitarinnar í Hörpu og fyrstu árin í nýju tónlistarhúsi. Þá stýrði hann viðskiptadeild Morgunblaðsins um árabil. Sigurður hefur víðtæka þekkingu og reynslu af rekstri og verkefnum m.a. sveitarfélaga og hefur starfað sem ráðgjafi m.a. fyrir opinbera aðila og setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert