Þolinmæði foreldra virðist á þrotum

Fossvogsskóla var lokað tímabundið síðasta vetur vegna raka og myglu.
Fossvogsskóla var lokað tímabundið síðasta vetur vegna raka og myglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Setja þarf lausn vandamálanna sem hafa komið upp vegna heilsuspillandi ástands Fossvogsskóla í forgang.

Þetta kemur fram í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á borgarstjórnarfundi í gær.

„Það er frumskylda borgarinnar að tryggja sérhverju grunnskólabarni heilnæmt skólahúsnæði. Sú frumskylda hefur ekki verið uppfyllt. Þrátt fyrir umfangsmikil fjárútlát við endurbætur skólans hefur viðeigandi árangri ekki verið náð,“ segir m.a. í bókuninni.

Fram kemur að niðurstöður Náttúrufræðistofnunar um að í húsnæðinu finnist eitruð efni sem geti reynst krabbameinsvaldandi hafi legið fyrir í desember 2020 en ekki birtar fyrr en í lok febrúar 2021.

„Niðurstöðurnar hafa ekki verið kynntar foreldrum og heildarskýrslan hefur ekki verið birt opinberlega. Foreldrar hafa sýnt fádæma þolinmæði og verið samvinnufúsir um lausnir. Þolinmæðin virðist þó eðlilega að þrotum komin. Skólahúsnæðið er heilsuspillandi og ábyrgðin er borgarstjórnarmeirihlutans,“ segir í bókuninni.

Fossvogsskóli.
Fossvogsskóli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reynt að þagga málið niður

Í bókun borgarfulltrúa Flokks fólksins kemur fram að reynt hafi verið að þagga málið niður og að verkið hafi ekki verið unnið með viðhlítandi hætti. Hann spurði hvar eftirlitsmennirnir hefðu verið og hver bæri ábyrgð.

„Þetta ástand hefur haft djúpstæð áhrif á börn, foreldra og starfsfólk, líkamlega og andlega. Margir hafa veikst og sumir ekki náð sér að fullu og munu kannski seint gera ef nokkurn tímann. Hvernig ætlar borgarmeirihlutinn að taka á þessu alvarlega máli og öðrum sambærilegum?“ segir í bókuninni.

Tryggja þurfi heilsusamlegt umhverfi 

Í bókun borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna kemur fram að mikil vinna hafi  verið lögð í að gera upp þá hluta skólans þar sem voru skemmdir vegna raka.

„Nýjasta sýnataka frá því í desember sem kynnt var á dögunum leiddi í ljós að þörf var á frekari aðgerðum varðandi frágang í rakasperru, hreinsun o.fl. og er þeim verkáfanga lokið. Næstu skref verða að taka frekari sýni til að ganga úr skugga um að þær hafi skilað tilætluðum árangri,“ segir í bókuninni.

„Samhliða þarf að huga að líðan þeirra barna sem hafa fundið fyrir einkennum og fara í gegnum leiðir til að mæta sem best þeirra þörfum í samstarfi við forráðamenn þeirra. Þau samskipti standa yfir og verður fram haldið þar til viðeigandi lausnir liggja fyrir. Fulltrúar meirihlutans ítreka mikilvægi þess að tryggja börnum og starfsfólki heilsusamlegt umhverfi og leggja áherslu á að áfram verði unnið að því að komast til botns í þessu máli þangað til það er tryggt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert