Hélt að tilkynning um vinning væri at

Átta milljónir skattfrjálsar eru slatti af seðlum.
Átta milljónir skattfrjálsar eru slatti af seðlum. mbl.is/Golli

Sextugur Hafnfirðingur vann átta milljónir króna í Happdrætti DAS en dregið var í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar er haft eftir manninum að hann hafi að vonum verið í skýjunum með vinninginn.

Síðan fór hann að efast og datt í hug að einhver væri að gera at í sér áður en hann komst að því að svo var ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert