Fara eftir hraunlíkönum Veðurstofunnar

Víðir Reynisson og Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Víðir Reynisson og Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Líklegustu sviðsmyndirnar varðandi mögulegt eldgos á Reykjanesskaga er að finna í hraunfræðilíkönum Veðurstofu Íslands. Vísindamenn eru sammála um að kvikugangur sé við Fagradalsfjall. Byggð er ekki talin í hættu.

Þetta segir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn spurður út í fund vísindaráðs almannavarna fyrr í dag. Hann segir að þau líkön sem Háskóli Íslands hefur birt séu tilgátulíkön og að þær sviðsmyndir séu ólíklegar.

Óvíst er hvort kvikan nái upp á yfirborðið, eins og Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur greindi frá í viðtali við mbl.is.

„Það væri fínt ef þetta ástand myndi bara ganga yfir án eldgoss, en við þurfum að vera búin undir allt,“ segir Víðir.

Á morgun klukkan 13 verður haldinn stöðufundur þar sem samráðshópur almannavarna hittist. Fulltrúar frá svæðinu þar sem hættustig hefur ríkt, í Árnessýslu, á Reykjanesskaga og á höfuðborgarsvæðinu, munu ræða saman um stöðu mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert