Heilsa barna stjórni aðgerðum

Frá Fossvogsskóla.
Frá Fossvogsskóla. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í skýrslu verkfræðistofunnar Verkís, sem dagsett er 4. mars 2021, kemur fram að almennt gildi að ef barn finni fyrir óþægindum vegna myglu verði að leita leiða til að bæta úr því. Það eigi ekki að vera háð niðurstöðum sýnatöku rannsókna, heldur heilsu barns.

Í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á borgarstjórnarfundi fyrr í vikunni kom fram að þrátt fyrir mikil fjárútlát við endurbætur á Fossvogsskóla hafi viðeigandi árangri ekki verið náð. 

Þar er enn fremur bent á niður­stöður Nátt­úru­fræðistofn­un­ar um að í hús­næðinu finn­ist eitruð efni sem geti reynst krabba­meinsvald­andi sem hafi legið fyr­ir í des­em­ber 2020 en ekki verið birt­ar fyrr en í lok fe­brú­ar 2021.

Meðal annars er haft eftir sérfræðingi Náttúrufræðistofnunar Íslands í skýrslu Verkís að í einni stofu skólans hafi fundist kúlustrýnebbi, sem telst varasamur sveppur innanhúss, eftir að viðgerðum vegna myglu var lokið.

Almennt finnist minni mygla í skólanum eftir viðgerðir og þrif en þó finnist enn varasamar sveppategundir í skólanum.

For­eldr­ar barna í Foss­vogs­skóla eru marg­ir hverj­ir langþreytt­ir á því sem þeir segja vera van­hæfni Reykja­vík­ur­borg­ar til þess að tak­ast á við vand­ann. Formaður skóla- og frí­stundaráðs seg­ir að ár­ang­ur hafi náðst í þeim aðgerðum sem ráðist var í en viður­kenn­ir að von­brigði séu að enn finn­ist myglu­gró í Foss­vogs­skóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert