Sex skjálftar riðu yfir á um tuttugu mínútum

Skjálftarnir hafa fundist vel í næstu byggðum við fjallið.
Skjálftarnir hafa fundist vel í næstu byggðum við fjallið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Átta skjálftar hafa mælst af stærð 3 og þar yfir á svæðinu við Fagradalsfjall frá því klukkan níu í morgun.

Mesti skjálftinn mældist 4,1 stig og reið yfir um klukkan 11.50 fyrir hádegi. Honum fylgdi fjöldi annarra skjálfta.

Þannig urðu fimm skjálftar á næstu rúmu tuttugu mínútum, þar af tveir af stærðinni 3,6.

Skjálftarnir hafa fundist vel í næstu byggðum, þar á meðal Grindavík. Rafmagnslaust er nú í bænum eftir að út sló í orkuverinu í Svartsengi fyrir norðan bæinn.

Ljóst er að skjálfta­virkn­in hef­ur undanfarna sólarhringa greini­lega færst í suðvest­ur, fjær fjall­inu Keili og um leið nær Fagra­dals­fjalli. Gos þar þykir nú líklegast, fari svo á annað borð að kvika komi upp á yfirborðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert