Gripinn við að skemma bíla með hamri

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Karlmaður var í nótt handtekinn í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann var í óðaönn að berja í bifreiðar með hamri. Var hann í annarlegu ástandi og með fíkniefni á sér. Hann situr nú í fangageymslu meðan málið er í rannsókn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar úr verslun í Háaleitis- og Bústaðahverfi og málið afgreitt á staðnum.

Í Hafnarfirði var maður handtekinn fyrir að veitast að fólki en hann var í mjög annarlegu ástandi að því er segir í skýrslu og var hann látinn sofa úr sér í fangaklefa.

Nokkuð var um ölvunarakstur eins og jafnan um helgar auk þess sem nokkrir ökumenn reyndust undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var í Grafarvogi en  sá var undir lögaldri og var haft samband við foreldra hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert