Ekki ólíklegt að hver einasti Grindvíkingur sé vakandi

Björgunarsveitarfólk í Grindavík að störfum.
Björgunarsveitarfólk í Grindavík að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarsveitin Þorbjörn hefur ekki verið kölluð út vegna skjálftahrinunnar sem riðið hefur yfir Grindavík og Reykjanesskagann í gærkvöldi og nótt. Henni hafa þá heldur ekki borist upplýsingar um að sérstök hætta sé á ferðum.

Frá þessu segir björgunarsveitin á Facebook og hughreystir um leið íbúa Grindavíkur.

„Nú gengur yfir gríðarlega öflug skjálftahrina og ekki ólíklegt að hver einasti Grindvíkingur sé nú vakandi enda hreinlega nötrar jörðin stanslaust hérna þessa stundina,“ segir í facebookfærslu sveitarinnar.

Bendir hún íbúum á, að komi til þess að hættuástand skapist eða til rýmingar komi verði það tilkynnt með mjög afgerandi hætti.

„Fyrst með sms-skilaboðum í alla síma á svæðinu, síðan með mjög áberandi hljóðmerkjum og síðast einfaldlega með banki á dyrnar,“ segir í tilkynningunni.

Eðlilegt að vera órólegur

„Það er mjög eðlilegt að vera órólegur á meðan svona hrinur ganga yfir. Við viljum minna fólk á að ganga frá lausamunum og passa að taka dót niður úr hillum.

Eins og staðan er er fínt vorveður úti og frídagur hjá flestum á morgun þannig að fólk gæti hæglega farið í stutta gönguferð eða kveikt á góðri mynd til að dreifa huganum á meðan þetta gengur yfir.

Eins og áður erum við á tánum og lofum að láta ykkur vita um leið og einhver hætta er á ferðum.“

Jarðskjálftavirkni undir og í nágrenni Fagradalsfjalls jókst til muna í gærkvöldi og hún hefur haldið áfram í nótt. Stærsti skjálftinn í hrinunni til þessa mældist 5,0 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert