Munu fara yfir símtalið

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri. Eggert Jóhannesson

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að símtal úr fjarskiptamiðstöð lögreglu þar sem lögregluþjónn spyr um ríkisfang sé til skoðunar. 

Mbl.is greindi frá því í gær að ung kona hefði hringt eftir aðstoð vegna þess sem hún taldi vera heimilisofbeldi, og spurði lögregluþjónn í fjárskiptamiðsð ríkislögreglustjóra hana þá hvort fólkið væri Íslendingar eða útlendingar. Gat hann ekki gefið konunni skýringar á spurningunni, en hringdi þó síðar til að segjast hafa viljað betri lýsingu á fólkinu. 

Sigríður Björk segir málið í skoðun og að afla þurfi skýringa hjá viðkomandi starfsmanni. 

„Það er allt tekið upp þannig að það sem við munum gera núna er að hlusta á símtalið og taka samtal við viðkomandi, hvað hann var að meina,“ segir Sigríður í samtali við mbl.is. 

Spurð um framhaldið sagðist Sigríður fyrst vilja kynna sér málið áður en ákvörðun væri tekin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert