Upplýsingafundur almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra vegna Covid-19-faraldursins fer fram klukkan 17:00 í dag. Boðað var til fundarins eftir að starfsmaður göngudeildar Landspítalans greindist með Covid-19.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fara yfir stöðuna í Covid-19-faraldrinum hér á landi.
Alls hafa um 50 starfsmenn og sjúklingar á Landspítala verið sendir í sóttkví vegna smitsins.