Ný vinnuvika heilsar með suðaustanátt og rigningu

Kort/Veðurstofa Íslands

Eftir hægviðri helgarinnar heilsar ný vika okkur með suðaustanátt og rigningu, víða 8-15 m/s. Talsverð rigning fram eftir degi á Suðausturlandi en lengst af úrkomulítið norðaustanlands. Á eftir skilum fylgir síðan fremur hæg suðvestanátt og skúrir suðvestan til á landinu. Áfram verður nokkuð hlýtt í veðri miðað við árstíma að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

„Útlit er síðan fyrir að dagurinn í dag leggi línurnar fyrir vikuna og nokkur lægðagangur verði en von er á næstu lægð að landinu strax annað kvöld með norðlægum áttum með rigningu eða slyddu sunnan og austan til en snjókomu á Norður- og Vesturlandi á miðvikudag og heldur lækkandi hitastigi.“

Veðurhorfur næstu daga

Suðaustan 8-15 m/s og rigning um landið sunnan- og vestanvert en snýst í suðvestan 5-10 með skúrum eða slydduéljum fyrir hádegi. Suðaustan 5-13 og talsverð rigning á Suðausturlandi fram eftir degi en úrkomulítið norðaustanlands fram á kvöld. Suðvestan 5-10 og úrkomulítið suðaustan til í kvöld en vestlæg átt og rigning á Austurlandi og Austfjörðum. Hiti 2 til 7 stig en víða næturfrost.

Vaxandi norðaustanátt á morgun, 10-18 síðdegis, hvassast á Vestfjörðum og með suðausturströndinni. Rigning með köflum sunnanlands, slydda eða snjókoma norðan og austan til en lengst af þurrt að kalla á Vesturlandi. Talsverð úrkoma austast annað kvöld. Hiti í kringum frostmark en að 4 stigum með suðurströndinni.

Á þriðjudag:
Hæg breytileg átt og skýjað með köflum en vaxandi norðanátt eftir hádegi. Norðan 8-15 og rigning eða slydda á austanverðu landinu um kvöldið en él við norðurströndina. Hiti 0 til 4 stig yfir daginn en frost 0 til 6 stig um kvöldið.

Á miðvikudag:
Norðan og norðaustan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma einkum um norðan- og austanvert landið. Dregur úr vindi austan til síðdegis en hvessir og bætir í úrkomu á Vestfjörðum. Hiti í kringum frostmark en vægt frost norðvestan til.

Á fimmtudag:
Ákveðin norðaustlæg átt og slydda eða snjókoma á norðvestanverðu landinu en hægari vindur og stöku skúrir syðra. Austanátt og dálítil rigning á austanverðu landinu. Hiti um og yfir frostmarki.

Á föstudag:
Útlit fyrir norðaustanátt og kólnandi veður. Él norðan og austan til en annars úrkomulítið. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Áframhaldandi norðaustanátt og éljagangur á norðanverðu landinu en úrkomulítið austanlands. Hiti í kringum frostmark.

Á sunnudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt og él á víð og dreif.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert