Eldgos æ líklegra

Kristín Jónsdóttir, fag­stjóri nátt­úru­vá­r hjá Veður­stof­unni.
Kristín Jónsdóttir, fag­stjóri nátt­úru­vá­r hjá Veður­stof­unni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Það er heilmikil virkni enn í gangi og ný gervitunglamynd frá því í gærkvöldi sýnir að kvikugangurinn milli Keilis og Fagradalsfjalls er að stækka og það er að byggjast upp þrýstingur í honum,“ segir Kristín Jónsdóttir, fag­stjóri á sviði nátt­úru­vá­r hjá Veður­stof­unni.

Frem­ur stór skjálfti reið yfir klukk­an 8.50 í morg­un og reynd­ist hann vera 4,6 stig og í nótt mæld­ist skjálfti af stærð 5,1 kl. 3.14 í suðvest­ur­horni Fagra­dals­fjalls. 

Heildarfjöldi skjálfta fór í dag yfir 34.000 í hrinunni á Reykjanesskaga sem hófst fyrir tveimur vikum.

Kristín segir gervitunglamyndina benda til þess að það sé frekar stöðugt flæði kviku inn í kvikuganginn. „Síðan bregst jarðskorpan þannig við að það verður hrinukennd jarðskjálftavirkni og einstaka sinnum stærri skjálftar.

Á mánudag kom fram að kvikugangurinn væri á um eins kílómetra dýpi þar sem hann er lengst til suðvest­urs og hef­ur hann haldið áfram að grynn­ast. Spurð hvort þetta muni enda með eldgosi segir Kristín líkurnar á því aukast:

„Ég held við þurfum að gera ráð fyrir því og á meðan þetta er í gangi aukast líkurnar. Auðvitað er þetta búið að standa yfir í nokkra daga og við erum ekki að sjá nein merki þess að þessu muni linna. Möguleikinn á eldgosi verður alltaf líklegri, eftir því sem líður á.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert