Losun dregst verulega saman vegna færri flugferða

„Losun frá flugsamgöngum 2020 varð svo tæplega helmingur af því …
„Losun frá flugsamgöngum 2020 varð svo tæplega helmingur af því sem var 2019. Losunin frá stóriðju 2020 var 1,5% meiri en 2019, en um 8% minni en hún var 2018,“ segir í Hagsjánni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Minni flugsamgöngur á síðustu tveimur árum hafa dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda frá hagkerfi Íslands. Losunin var mun minni á síðasta ári en árið 2018 og einnig ívið minni en árið 2019. 

Þetta kemur fram í Hagsjá Landbankans

„Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands var losun hitunargilda (CO2-ígilda) frá hagkerfi Íslands 5.505 kílótonn á árinu 2020, sem var 16,3% minni losun en 2019, þegar hún var 6.575 kílótonn. Árslosun 2019 minnkaði einnig frá 2018 og var 13,5% minni en árslosunin 2018. Meginástæða þessa var mikill samdráttur í flugi,“ segir í Hagsjánni. 

Fall WOW markar losunarbókhaldið

Þar kemur fram að árið 2018 hafi verið stærsta ár sögunnar varðandi komur ferðamanna til Íslands. Það markar því losunarbókhaldið mikið. 2019 hætti flugfélagið WOW air rekstri og hafði það veruleg áhrif á farþegaflug og því losun frá flugsamgöngum. Þá hefur árið 2020 einkennst af áhrifum kórónuveirufaraldursins á flugsamgöngur og einkennandi greinar ferðaþjónustu, vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Allt frá upphafi ársins 2019 var ljóst að losun frá flugsamgöngum myndi minnka mikið og þurfti ekki faraldur til. Losun frá flugsamgöngum minnkaði þannig um 36% milli 2018 og 2019 og losun frá stóriðju minnkaði einnig um 9%. Þá minnkaði losun frá flutningum á sjó um 10%. Ástæður þessa voru nokkrar, brotthvarf WOW air, minni framleiðsla og bilanir í álverksmiðjum og almennur samdráttur tengdur þessu. Þarna var því ekki um skipulagðan samdrátt í losun samkvæmt markmiðum að ræða,“ segir í Hagsjánni. 

Losunin árið 2020 aðeins 30% af losuninni árið 2018

Þar kemur fram að losun frá flugsamgöngum á árinu 2020 hafi einungis verið um 30% af því sem hún var árið 2018 þegar hún var mest, miðað við tölur Hagstofunnar um losun á öllu árinu 2020. 

„Losun frá flugsamgöngum 2020 varð svo tæplega helmingur af því sem var 2019. Losunin frá stóriðju 2020 var 1,5% meiri en 2019, en um 8% minni en hún var 2018,“ segir í Hagsjánni.

Flugsamgöngur, stóriðja, heimili, landbúnaður, flutningar á sjó og fiskveiðar losuðu um 86% af heildarmagni losunar hér á landi 2016-2018.

„Þetta hlutfall lækkaði svo niður í 82% 2019 og 79% 2020 og er skýringin minni flugumferð. Minnkun flugumferðar felur auðvitað í sér að hlutfall annarra greina hækkar, en það á þó ekki við um flutninga á sjó og fiskveiðar þar sem hlutallið lækkaði 2020,“ segir í Hagsjánni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert