Hreinsunarstarf enn í fullum gangi

Hér stóð hús sem hét Framhús og var eigandi þess …
Hér stóð hús sem hét Framhús og var eigandi þess að gera það upp áður en skriðurnar féllu. Nú standa eftir aðeins tröppurnar að húsinu og garðhliðið. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Lögreglustjórinn á Austurlandi segir að stöðufundur hafi verið haldinn í gær með lögreglu, almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, fulltrúum Múlaþings, Veðurstofu, fulltrúa heimastjórnar á Seyðisfirði og fleirum. Þar var farið yfir gang hreinsunarstarfs, bráðabirgðahættumat og líkanreikninga, vöktunarmæla, rýmingarkort og fleira.

Fram kemur í tilkynningu, að í liðinni viku hafi mest verið unnið á svæðinu við Slippinn. Þar hafi verið unnið við að stækka þróna og færa efni yfir í syðri varnargarðinn og stækka hann. Hönnun á ræsi og skurði við Hafnargötu sé lokið og nú sé ræsaefni komið á staðinn. Sökum bleytu hafi verk aðeins tafist frá því á miðvikudag en verður fram haldið á fullu þegar skilyrði lagast.  

Áfram er unnið að útfærslu á þverun Búðarár og Hafnargötu og við undirbúning varna við Botnahlíð.

Þá kemur fram, að mælakerfið sem sett hafi verið upp skili gögnum og skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist með þeim daglega. Fleiri GPS-tæki og speglar verði settir upp á næstu vikum þannig að fyrirhugað mælakerfi í fyrsta forgangi verði komið upp fyrir vorleysingar. Lokið hafi verið við líkanreikninga vegna hættumats við Múla. Túlkun þeirra sé langt komin og gert sé ráð fyrir að gefa út hættumat fyrir svæðið í byrjun næstu viku. Þá segir að Efla hafi skilað landlíkani með bráðabirgðavörnum fyrir byggðina innan Búðarár og stendur nú til að kanna virkni þeirra með líkanreikningum

„Rýmingarkort eru í vinnslu sem og útgáfa á leiðbeiningablöðum til dreifingar í hús á Seyðisfirði, en þar má meðal annars finna ráð til íbúa um það hvernig rétt sé að bera sig að komi til rýmingar.  

Þjónustumiðstöð almannavarnadeildar er ekki lengur með viðveru í Herðubreið. Starfsfólk miðstöðvarinnar tekur sem fyrr við fyrirspurnum og athugasemdum í síma 839-9931. Einnig er hægt að senda netpóst á netfangið sey@logreglan.is.

Spurningar sem hafa borist í kjölfar íbúafunda og til þjónustumiðstöðvar eru settar með svörum á vef Múlaþings, mulathing.is, jafnóðum og þau berast. Þar má finna fróðleik og svör við mörgum spurningum. Félagsþjónusta Múlaþings býður upp á viðtöl á mánudögum í Íþróttahúsi Seyðisfjarðar. Sálfræðiþjónusta er í boði á miðvikudögum á heilsugæslu HSA á Seyðisfirði, símapöntun í síma 470-3000,“ segir enn fremur. 

Frá Seyðisfirði eftir að stórar aurskriður féllu þar í desembermánuði.
Frá Seyðisfirði eftir að stórar aurskriður féllu þar í desembermánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert