Hluti af miðbæ Hafnarfjarðar rafmagnslaus

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður. mbl.is

Rafmagnslaust er í hluta miðbæjar Hafnarfjarðar. Um er að ræða háspennubilun í kringum miðbæinn. Samkvæmt upplýsingum frá HS-Veitum vinnur starfsfólk nú að því að finna hvar bilunin er staðsett. Í framhaldinu verður reynt að tengja fram hjá biluninni. 

Ekki er vitað hvað veldur biluninni né heldur hversu mörg hús eru án rafmagns.

Uppfært: 22:20 Rafmagn er komið á að nýju.

Rafmagnslaust er í hluta Hafnarfjarðar út frá Hverfisgötu. Við erum að leita að biluninni. Biðjumst velvirðingar.

Posted by HS Veitur hf on Laugardagur, 13. mars 2021
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert