Skjálfti af stærð 4,1 við Fagradalsfjall

Fagradalsfjall.
Fagradalsfjall. Eggert Jóhannesson

Jarðskjálfti af stærð 4,1 varð við Fagradalsfjall á Reykjanesi klukkan 22:06 í kvöld. Jarðskjálftavirknin á svæðinu er aðeins að aukast en hún var fremur lítil í dag, að sögn Einars Hjörleifssonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. 

Nokkrir skjálftar í stærri kantinum urðu á Reykjanesi á tíunda tímanum í kvöld, þar af einn af stærð 3,6 klukkan 21:36 og annar af stærð 3,7 klukkan 21:39.

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert