Fjórir handteknir og húsleit á sex stöðum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að störfum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að störfum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra og gerði húsleit á sex stöðum í umdæminu og utan þess í morgun.

Aðgerðirnar tengjast rannsókn lögreglu á manndrápi í Rauðagerði í síðasta mánuði.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að búast megi við annarri tilkynningu þegar frekari upplýsingar liggja fyrir, hugsanlega síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert