Mesta virkni sem hefur mælst frá upphafi

Upphaf þeirrar miklu virkni sem nú mælist á Reykjanesskaga má rekja til þess þegar skjálftahrina og landris mældist við Þorbjörn í lok janúar 2020.

Það var strax ljóst að atburðarásin var óvenjuleg fyrir svæðið ef horft var til virkni síðustu áratuga á svæðinu. Mat vísindaráðs almannavarna eftir fyrstu hrinurnar var það að atburðarás eins og var að hefjast á Reykjanesskaga gæti orðið mjög löng og kaflaskipt, þar sem dregur úr virkni tímabundið án þess að henni sé að fullu lokið. Sú hefur orðið raunin. Eldgos hófst í Fagradalsfjalli í kvöld. Fyrsta tilkynning barst Veðurstofunni klukkan 21:40. Gos var staðfest í gegnum vefmyndavélar og gervitunglamyndir. Staðsetning er við Fagradalsfjall. Lítill órói sást á mælum. Vísindamenn eru að leggja af stað í þyrluflug til að staðsetja gosið nánar. Upptök eldgossins eru rétt austan Fagradalsfjalls, líklega í Geldingadal.

Á síðustu öld mældist veruleg virkni víða á Reykjanesskaganum á árunum 1927-1955 og 1967-1977. En virknin nú er sú mesta sem mælst hefur á Reykjanesskaganum frá upphafi.

Eldgosið séð frá Njarðvík.
Eldgosið séð frá Njarðvík. Hildur Hlín Jónsdóttir
Kortið sýnir líklega staðsetningu gossins miðað við nýjustu upplýsingar. Upptökin …
Kortið sýnir líklega staðsetningu gossins miðað við nýjustu upplýsingar. Upptökin eru rétt austan Fagradalsfjalls, líklega í Geldingadal. Kort/Veðurstofa Íslands
Fagradalsfjall.
Fagradalsfjall. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Kortið sýnir líklega staðsetningu gossins miðað við nýjustu upplýsingar. Upptökin …
Kortið sýnir líklega staðsetningu gossins miðað við nýjustu upplýsingar. Upptökin eru rétt austan Fagradalsfjalls, líklega í Geldingadal. Kort/Veðurstofa Íslands
Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert