Úr neyðarstigi í hættustig

Myndir af gosinu í Geldingadal við Fagradalsfjall sem voru teknar …
Myndir af gosinu í Geldingadal við Fagradalsfjall sem voru teknar í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að lækka almannavarnastig úr neyðarstigi niður í hættustig. Þetta var ákveðið eftir stöðufund í morgun þar sem farið var yfir gögn vísindamanna.

Fyrr í morgun höfðu vísindamenn farið í könnunarflug yfir gosstöðvarnar til að meta umfang eldgossins enn frekar. Það er mat vísindamanna að gosstöðvarnar séu litlar og lítil framrás hefur verið frá því í gær, talið er að gosið ógni ekki mannvirkjum eða byggð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert