Hraunið allt að 22 metra þykkt

Horft yfir eldgosið í Geldingadölum.
Horft yfir eldgosið í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Pléiades-gervihnattirnir, sem hringsóla umhverfis jörðina á vegum frönsku geimvísindastofnunarinnar CNES, hafa tekið ljósmyndir af gosstöðvunum í Geldingadölum til að fylgjast með framgangi jarðeldanna þar.

Gígurinn um 20 metrar að hæð

Unnin hafa verið hæðarkort út frá myndefninu og með samanburði við eldri kort hafa fengist upplýsingar um þykkt og rúmmál hraunsins, auk þess sem hraunflæði hefur verið að meta.

Nýjustu myndirnar voru teknar klukkan 13.20 í gær og sýna að hæð gígsins er um 20 metrar, mesta þykkt hraunsins er 22 metrar og meðalþykkt þess 9,5 metrar.

Dekkri litir í grafíkinni tákna meiri þykkt hraunsins.
Dekkri litir í grafíkinni tákna meiri þykkt hraunsins.

5,7 rúmmetrar á sekúndu og flæðið breytist ekki

Rúmmál hraunsins er 1,8 milljón rúmmetra sem svarar til hraunflæðis upp á um það bil 5,7 rúmmetra á sekúndu, frá upphafi gossins. 

Sama meðalhraunflæði fæst fyrir tímabilið frá 22. mars kl. 13.15 til 23. mars kl. 13.20.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert