Leikskólar opna í hádeginu á morgun

Starfsdagur verður í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu til hádegis á morgun.
Starfsdagur verður í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu til hádegis á morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Leikskólar á höfuðborgarsvæðinu verða opnaðir klukkan 12 á hádegi á morgun, fimmtudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins.

Fyrri partur morgundags verður nyttur til að innleiða breytt skipulag svo að starfsemi leikskóla með breyttu skipulagi verði farsælt, að því er segir í tilkynningu.

Aðeins mega tíu fullorðnir vera saman í hverju sóttvarnahólfi og töluverður hausverkur að laga skólastarfið að þeim reglum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert