Játning liggur fyrir í Rauðagerðismálinu

Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn á blaðamannafundinum.
Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn á blaðamannafundinum. Ljósmynd/Lögreglan

Játning liggur fyrir vegna manndráps við Rauðagerði þegar albönskum karlmanni var ráðinn bani rétt fyrir miðnætti 13. febrúar síðastliðinn.

Þetta kom fram í máli Margeirs Sveinssonar yfirlögregluþjóns á blaðamannafundi vegna málsins en maðurinn var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt við Rauðagerði. Skotvopnið fann lögregla í sjó við höfuðborgina.

Blaðamannafundur vegna manndráps í Rauðagerði. Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri, Margeir …
Blaðamannafundur vegna manndráps í Rauðagerði. Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri, Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn og Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ljósmynd/Lögreglan

Maðurinn neitaði sök í upphafi en játaði þegar hann var kominn upp við vegg, eins og Margeir orðaði það á fundinum. 

Margeir sagði játningu passa við gögn og kenningar lögreglu um hvernig atburðarásin var en þeir sem eru taldir eiga mesta aðild að málinu eru frá Albaníu, líkt og hinn látni. Sá sem játaði kom hingað til lands frá Albaníu fyrir sjö eða átta árum.

Margeir tók sérstaklega fram að fylgst verði áfram með framvindu mála varðandi mögulegar hefndaraðgerðir eftir að játning liggur fyrir. Lögregla telur sig vita ástæðu morðsins en segir ekki tilefni til að upplýsa um hana á þessari stundu.

Enn fremur er talið að fórnarlambið í málinu hafi tengst skipulagðri brotastarfsemi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert