Orri Páll verðlaunaður fyrir viðtal ársins

Orri Páll Ormarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu.
Orri Páll Ormarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Orri Páll Ormarsson, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, hlaut Blaðamannaverðlaun BÍ fyrir viðtal ársins.

Tilkynnt var um þetta í beinu streymi Blaðamannafélags Íslands. 

Fréttatilkynning um vinningshafana

Viðtalið tók Orri Páll við Ingva Hrafn Jónsson og birtist það í blaðinu 12. júlí 2020. Þar ræðir Ingvi Hrafn um andlát bróður síns, Jóns Arnar Jónssonar, og þá ákvörðun hans að þiggja dánaraðstoð í Kanada.

Umsögn dómnefndar um viðtalið:

Í viðtali Orra Páls við Ingva Hrafn Jónsson undir fyrirsögninni Vill lögleiða dánaraðstoð er dregin upp ný hlið á annars þjóðþekktum manni. Ingvi Hrafn ræðir bróðurmissi á liðnu ári og þau djúpstæðu áhrif sem ákvörðun bróður hans um að þiggja dánaraðstoð hafði á hann. Í framhaldinu fjallaði Orri Páll nánar um dánaraðstoð og dýpkaði með umfjöllun sinni umræðu um þetta viðkvæma mál.

Þórhildur hlaut blaðamannaverðlaun ársins

Þórhildur Þorkelsdóttir hjá RÚV hlaut blaðamannaverðlaun ársins fyrir vönduð fréttatengd viðtöl þar sem sjónum er beint að einstaklingum í erfiðum aðstæðum.

Umsögn dómnefndar:

Þórhildur fjallaði meðal annars um ótrúlegt björgunarafrek í Hafnarfjarðarhöfn, alvarleg mistök læknis á bráðamóttöku, kynferðisbrot á þroskaskertri konu í dagvistun á vegum Reykjavíkurborgar. Í þessum málum og fleirum sem Þórhildur hefur fjallað um tekur hún ítarleg, greinargóð og einnig áhrifarík viðtöl við þolendur og aðra sem að málum koma og dýpkar með því skilning bæði á atburðunum sjálfum og afleiðingum þeirra.

Kjarninn með umfjöllun ársins

Sunna Ósk Logadóttir, Bára Huld Beck, Þórður Snær Júlíusson, Arnar Þór Ingólfsson og Jónas Atli Gunnarsson hjá Kjartanum voru verðlaunuð fyrir umfjöllun ársins um eldsvoðann á Bræðraborgarstíg 1 og margháttaðar afleiðingar hans.

Umsögn dómnefndar:

Í umfangsmikilli umfjöllun er fjallað af næmni og dýpt um mannskæðan húsbruna á Bræðraborgarstíg 1 í Reykjavík í fyrrasumar. Blaðamennirnir nálgast atburðinn frá ótal hliðum, frá þeim mannlega harmleik sem átti sér stað, yfir í kerfislæga jaðarsetningu og oft á tíðum óboðlegan aðbúnað erlends verkafólks á Íslandi.

Nadine með rannsóknarblaðamennsku ársins

Nadine Guðrún Yaghi, fréttastofu Stöðvar tvö, Bylgjunnar og Vísis, var verðlaunuð fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir umfjöllun um umfangsmikil og afdrifarík mistök sem gerð voru við greiningar á leghálssýnum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.

Umsögn dómnefndar:

Nadine Guðrún Yaghi afhjúpaði umfangsmikil og afdrifarík mistök sem gerð voru við greiningu á leghálssýnum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Fréttaflutningurinn leiddi til þess að þúsundir sýna voru endurgreind og fjöldi frumubreytinga, sem ella hefðu ekki fundist, komu í ljós. Sögð var saga kvenna sem höfðu ýmist greinst með ólæknandi krabbamein, farið í legnám eða látist. Umfjöllunin varpaði ljósi á brotalöm í greiningarferli sem notið hefur trausts.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert