Bein útsending frá gosinu

Gosstöðvar. Jón Axel, Kristín Sif og Ásgeir Páll í beinni …
Gosstöðvar. Jón Axel, Kristín Sif og Ásgeir Páll í beinni frá Geldingadölum í gær. Á meðan eldaði Völundur Snær og Ellý Ármanns málaði eldgosið. Eggert Jóhannesson

Beinni útsendingu morgunþáttar K100, Ísland vaknar, frá eldgosinu í Geldingadölum var vel tekið í gærmorgun. Jón Axel, Kristín Sif og Ásgeir Páll voru í loftinu frá kl. 7 til 9, bæði í hljóð og mynd, með glóandi hraunið og gígana í bakgrunni.

Þetta mun hafa verið í fyrsta sinn hér á landi, og þótt víðar væri leitað, sem heill útvarpsþáttur er sendur út í beinni frá gosstöðvum.

Á meðan þátturinn var í loftinu eldaði Völundur Snær morgunverð ofan í mannskapinn og Ellý Ármanns málaði á striga myndir af gosinu fyrir framan hana. Myndirnar seldi hún svo til stuðnings björgunarsveitunum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert