Aldrei orðið svona gamall áður!

Björgvin Halldórsson verður sjötugur 16. apríl.
Björgvin Halldórsson verður sjötugur 16. apríl. Eggert Jóhannesson

„Ég er eiginlega ekki búinn að átta mig á þessu, þannig að ég veit ekki hvernig tilfinningin er. Ég hef náttúrulega aldrei orðið svona gamall áður,“ segir Björgvin Halldórsson söngvari en hann verður sjötugur hinn 16. apríl. „Það var mikið stuð undir lok sjöunda áratugarins og svo áfram á áttunda og níunda áratugnum og hver hefði getað ímyndað sér að öllum þessum árum seinna yrði maður búinn að fylla allar þessar hallir og gefa út allar þessar plötur?“

Popparar voru ungt fólk

Þegar Björgvin var ungur þótti honum gamalt að verða fimmtugur, hvað þá sjötugur. Og var ugglaust ekki einn um það. Er það ekki alltaf þannig þegar við horfum á þá sem eldri eru? Margt hefur líka breyst á umliðnum áratugum og fólk slítur sér upp til hópa seinna út, sjötugur maður í dag er ekki sama og sjötugur maður árið 1971.

„Mér finnst ég ekki vera gamall,“ heldur Björgvin áfram, „enda heldur músíkin mér ungum. Ég hef alltaf fylgst vel með, bæði senunni hér heima og erlendis, og það hefur gefið mér mikinn kraft sem ég nærist enn þá á. Hljómsveitin mín í dag er líka skipuð mun yngri mönnum sem brýnir mig og fær mig til að vera á tánum.“

Björgvin Halldórsson var valinn poppstjarna Íslands árið 1969.
Björgvin Halldórsson var valinn poppstjarna Íslands árið 1969.


– Hefðum við hist árið 1971 og ég sagt þér að þú yrðir enn þá að syngja sjötugur, hefðirðu trúað mér?

„Nei, ertu frá þér? Ég gat ekki ímyndað mér að ég yrði enn þá að sjötugur, án þess að ég hafi endilega verið að velta því mikið fyrir mér. Þegar ég var að byrja í bransanum voru popparar langmest ungt fólk, undir þrítugu, og ekki óalgengt að maður fengi eftirfarandi spurningu frá sér eldra fólki: Hvernig er þetta eiginlega með þig drengur, hvenær ætlarðu að hætta að leika þér og fara að gera eitthvað af viti? Og farðu svo í klippingu!“

Hann hlær.

Sennilega væri fátæklegt um að litast í Rokksafni Íslands hefðu frumherjarnir, kynslóð Björgvins, farið að þeim ráðum.

„Einhverju sinni var ég spurður hvort ég myndi ekki bara enda á Hótel Sögu,“ rifjar Björgvin upp. „Ég svaraði því til að það yrði þá bara með sinfóníuhljómsveit en það fór samt svo að ég söng þarna einn vetur með bandi, frábærum mönnum, og hafði mjög gaman af. Á þeim tímapunkti hafði maður löngu áttað sig á því að ekki yrði aftur snúið og ég er gæfusamur maður að hafa alla tíð fengist við það sem ég hef gaman af; listagyðjan læsti í mig klónum og ég mun halda ótrauður áfram meðan röddin dugar. Við Raggi Bjarna og fleiri komum fram saman á Fiskideginum mikla á Dalvík fyrir örfáum árum og hann var eins og tímastillir á okkur hin – söng þangað til hann var 85 ára og hafði ekkert fyrir því. Það segir okkur meira en öll orð um það að aldur er afstæður. Bara hugarástand.“

Björgvin tekur lagið með Svölu dóttur sinni.
Björgvin tekur lagið með Svölu dóttur sinni. Eggert Jóhannesson


Býður inn á skrifstofuna

Björgvin heldur að sjálfsögðu upp á afmælið með pomp og prakt á tónleikum í Borgarleikhúsinu að kvöldi afmælisdagsins, 16. apríl. Engir gestir verða í sal vegna heimsfaraldursins en dagskránni verður streymt á netinu og hjá Símanum og getur fólk nálgast kóðamiða á tix.is.

„Covid hefur verið algjör bömmer fyrir okkur tónlistarmenn en neyðin kennir naktri konu að spinna og þar sem veiran er ekki alveg á förum kemur streymið í góðar þarfir. Við Sena Live prófuðum þetta með Jólagesti Björgvins í fyrra og það heppnaðist alveg ljómandi vel. Við seldum meira að segja þúsund miða í útlöndum, Alsír, Nýja-Sjálandi, Portúgal og víðar. Eflaust mest til Íslendinga og fólks sem tengist landinu. Það var mjög gaman að geta komið með þessa tónleika heim í stofu til fólks.“

Á þeirri reynslu verður byggt 16. apríl til að færa fólki afmælisveisluna heim. „Ég er með æðislegt teymi með mér í þessu, bæði á sviðinu og að tjaldabaki. Þetta verður svona má-bjóða-ykkur-inn-á-skrifstofuna-mína-stemning. Ég og gestir mínir syngjum lög sem ég hef sungið gegnum tíðina. Svala og Krummi verða þarna, GDRN, KK og Jóhanna Guðrún og í bakröddum Friðrik Ómar, Regína Ósk og Eyfi Kristjáns, en sá kæri vinur minn verður einmitt sextugur á miðnætti þetta kvöld. Frábær stórhljómsveit Björgvins verður til staðar skipuð vinum og samstarfsnönnum. Ísleifur Þórhallsson, sá mikli tónleikahaldari, og Sena Live gera þetta með mér, Björn G. Björnsson sér um handrit og sviðsmyndina og Gunnar Helgason leikstýrir.“

Björgvin og Gunnar Þórðarson. Þeir hafa unnið mikið saman gegnum …
Björgvin og Gunnar Þórðarson. Þeir hafa unnið mikið saman gegnum tíðina.


Björgvin viðurkennir að ekkert jafnist á við að halda tónleika fyrir fullum sal af fólki en streymið bjóði þó upp á nýja möguleika og verði án nokkurs vafa valkostur áfram enda þótt veiran kveðji á endanum. „Streymið er komið til að vera enda einstök leið til að hafa fólk sem ekki á heimangengt, fólk úti á landi eða úti í heimi með á viðburðum sem þessum. Streymið er allra hagur.“

Lesa má viðtalið í heild sinni hér á mbl.is í vefútgáfu Morgunblaðsins.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert