Einn úrskurðaður í gæsluvarðhald

Einn maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins.
Einn maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. mbl.is/Árni Sæberg

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í tengslum við rannsókn lögreglu á andláti manns á Landspítalanum í gær. Þrír voru handteknir í tengslum við málið en tveimur hefur nú verið sleppt úr haldi. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum og verður hann í varðhaldi til föstudagsins 9. apríl. 

Karlmaður var fluttur á Landspítala á föstudagsmorgun eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi. Tilkynning um málið barst lögreglu klukkan 8:51 að morgni föstudagsins langa, en málsatvik voru í fyrstu mjög óljós. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert