12% fengið bóluefni eða með mótefni

Á Landspítala hafa 90% starfsmanna fengið bóluefni.
Á Landspítala hafa 90% starfsmanna fengið bóluefni. mbl.is/Arnþór Birkisson

Að loknum fyrsta ársfjórðungi 2021 hafa þegar 49.300 einstaklingar verið bólusettir. Nú hafa rúmlega 12% þeirra sem áætlað er að bólusetja fengið bólusetningu eða myndað mótefni gegn veirunni. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Bólusetning landsmanna tekur mið af þeim tíu forgangshópum sem skilgreindir eru í reglugerð nr. 1198/2020. Búið er að bólusetja að fullu nær alla landsmenn 80 ára og eldri.

Í aldurshópnum 70 – 79 ára hafa 68% hópsins fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni og um 16% þeirra eru fullbólusettir. Í vikunni hefst bólusetning árganga þeirra sem fæddir eru árin 1949, 1950 og 1951. 

Á Landspítala hafa 90% starfsmanna fengið bóluefni

Á Landspítala gengur bólusetning starfsmanna vel segir enn fremur í tilkynningu ráðuneytisins.

Starfsmenn spítalans eru um 6.200 og hafa tæplega 90% þeirra þegar fengið bóluefni. Um 2.900 þeirra eru bólusettir að fullu en 2.500 hafa fengið einn bóluefnaskammt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert