Von á 65.300 bóluefnaskömmtum í apríl

Heilbrigðisstarfsmaður undirbýr bólusetningu.
Heilbrigðisstarfsmaður undirbýr bólusetningu. AFP

Von er á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum hingað til lands í apríl frá þeim fjórum framleiðendum sem eru með markaðsleyfi hérlendis.

Pfizer er eini framleiðandinn sem hefur staðfest afhendingaráætlun til lengri tíma og samkvæmt henni er von á 117.000 bóluefnaskömmtum samtals í maí og júní.

Þetta kemur fram í yfirliti heilbrigðisráðuneytisins varðandi afhendingu bóluefna.

Samkvæmt staðfestri afhendingaráætlun Pfizer berast Íslandi 37.000 skammtar í apríl, 54.000 skammtar í maí og 63.000 skammtar í júní.

Í lok nýliðins ársfjórðungs hafði Ísland fengið samtals um 75.000 bóluefnaskammta frá því að bólusetningar gegn Covid-19 hófust hér á landi 29. desember síðastliðinn, eða að meðaltali tæplega 25.000 skammta á mánuði.

Mánaðarleg afhending hefur því aukist um 160% miðað við að í vændum eru tæplega 65.300 skammtar í apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert