„Fyrirsjáanlegasta niðurstaða ársins“

Jón Magnússon, Magnús Jónsson og Ómar Valdimarsson, lögmenn í málinu, …
Jón Magnússon, Magnús Jónsson og Ómar Valdimarsson, lögmenn í málinu, mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur. mbl.is/Árni Sæberg

Ómar R. Valdimarsson og Jón Magnússon, lögmenn fólks sem var gert að sæta dvöl í sóttvarnahúsi, eru báðir vonsviknir yfir því að ekki hafi komið fram efnisdómur í Landsrétti vegna málsins.

„Ég er sannfærður um hvernig það hefði farið. Það liggur ljóst fyrir miðað við hvernig niðurstaða héraðsdómara var,“ segir Jón.

Fyrr í kvöld vísaði Landsréttur frá kæru Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis vegna úrskurðar héraðsdóms um að ólögmætt sé að skylda fólk í sóttvarnahús. Málunum var vísað frá vegna skorts á lögvörðum hagsmunum.

Hefði fengist fordæmi 

„Þetta var það sem maður bjóst við að myndi gerast, því miður. Það hefði verið æskilegt að fá efnisdóm Landsréttar um málið því þá værum við komin með klárt fordæmi,“ segir Jón og bætir við að eftir standi úrskurður héraðsdóms. „Þá sér maður ekki að heilbrigðisráðherra eða sóttvarnalæknir geti vikið sér undan því að meðhöndla mál á þeim grundvelli að þarna liggi fyrir niðurstaða sem hafi ekki verið hnekkt og verði að taka ákvarðanir og afstöðu til stöðu sinnar í framhaldi af því,“ segir hann.

Frá héraðsdómi.
Frá héraðsdómi. mbl.is/Árni Sæberg

Getur sjálfum sér um kennt

Jón bætir við að sóttvarnalæknir geti engum öðrum um kennt en sjálfum sér. Ef málið hefði verið rekið með eðlilegum hraða og hann hefði komið málinu, strax og kærur bárust, í farveg fyrir héraðsdóm þá hafi fólkið ekki verið laust úr þessum viðjum þegar Landsréttur hefði kveðið upp sinn dóm.

Ferlið hafi byrjað á föstudaginn langa, hvað varðar umbjóðendur hans og Ómars. Vegna seinagangs sóttvarnalæknis hafi það ekki verið komið í ferli fyrr en á páskadag. Ótrúlegt sé að embættið hafi ekki verið búið undir það strax í upphafi að einhverjir myndu kæra afstöðuna.

Ómar segir úrskurð héraðsdóms vera endanlegan. „Þetta eru þær einu dómsúrlausnir sem liggja fyrir í málinu. Á meðan þeim hefur ekki verið haggað er þetta rétt mat og endanleg úrslausn á þessu máli,“ segir hann og bætir við að niðurstaða Landsréttar sé „fyrirsjáanlegasta niðurstaða ársins“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert