Framkvæmdir hafnar

Lítil grafa leggur grunn að fyrirhuguðum framkvæmdum tveggja fjölbýlishúsa á …
Lítil grafa leggur grunn að fyrirhuguðum framkvæmdum tveggja fjölbýlishúsa á vegum Leigufélags aldraðra á Sjómannaskólareitnum. mbl.is/Árni Sæberg

Framkvæmdir eru hafnar við Vatnsholtið að sögn Ólafs Arnar Ingólfssonar, stjórnarformanns Leigufélags aldraðra.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var lítil grafa mætt á Sjómannaskólareitinn við Vatnsholtið í gær en þar er fyrirhuguð bygging tveggja þriggja hæða fjölbýlishúsa á vegum Leigufélags aldraðra. Í húsunum tveimur er áætlað að verði 51 íbúð.

Fjölbýlishúsin eru hluti af uppbyggingu á Sjómannaskólareitnum en fyrsta skóflustungan á reitnum var tekin þann 17. mars síðastliðinn og eru verklok áætluð á þriðja ársfjórðungi 2022.

Skiptar skoðanir hafa verið á framkvæmdunum en íbúar við Sjómannaskólareitinn hafa lengi barist gegn því að borgaryfirvöld byggðu á þessu græna svæði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert