Tveir menn týndir við gosstöðvarnar

Frá gosinu fyrr í vikunni að næturlagi.
Frá gosinu fyrr í vikunni að næturlagi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Björgunarsveitir á suðvesturhorninu og úr Árnessýslu hafa verið kallaðar út til leitar að tveimur göngumönnum sem eru týndir við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga.

Heimildir mbl.is herma að um sé að ræða tvo belgíska ferðamenn.

Útkallið barst rétt fyrir klukkan 22 í kvöld. Mennirnir tveir náðu sjálfir að hringja í Neyðarlínuna og óska eftir aðstoð, segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 

Þeir hópar björgunarsveitarfólks og lögreglu sem voru á svæðinu hófu strax leit um leið og meiri mannskapur var kallaður út. Samband náðist við mennina og verið er að afla upplýsinga og skipuleggja frekari leit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert