Fjögurra vikna farbann vegna mannsláts

Ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald.
Ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald. mbl.is/Árni Sæberg

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í fjögurra vikna farbann, eða til 7. maí, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mannsláti í Kópavogi um síðustu helgi.

Maðurinn hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á páskadag og rann það út í dag. Ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald, að því er segir í tilkynningu.

Rannsókn málsins miðar vel, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert