Líklega gasmengun við gosstöðvarnar

Eldgos á Reykjanesskaga laðar marga að.
Eldgos á Reykjanesskaga laðar marga að. mbl.is/Kristinn Magnússon

Búast má við gasmengun víða á Reykjanesi nú með morgninum og eins að gasmengun hafi safnast saman við gosstöðvarnar í nótt. Gossvæðið er vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá hádegi í dag til miðnættis. Utan þess tíma er fólk á eigin ábyrgð.

Veður- og gasspá fyrir daginn í dag – í dag, laugardaginn, 10. apríl: Sunnan og suðaustan, 5-8 m/s og þykknar upp með morgninum og hlýnar, suðvestan 8-13 m/s og snjókoma eða él síðdegis og hiti kringum frostmark, en vestlægari um kvöldið.

Í nótt og snemma morguns má búast við gasmengun víða á Reykjanesinu og einnig að gasmengun hafi safnast upp við gosstöðvarnar yfir nóttina. Er líður á morguninn berst gasmengun einkum til norðvesturs að Reykjanesbæ, en síðar til norðurs að Vogum. Síðdegis má búast við að gasmengun berist til austurs og norðausturs að höfuðborgarsvæðinu og Þorlákshöfn.

Lokað verður inn á gossvæðið klukkan 21 í kvöld og hefst rýming kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti.
Þeir sem ætla sér inn á svæðið hádegi gera það á eigin ábyrgð samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.
„Svæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.“
  • Svæðið er ekki fyrir lítil börn, þau eru viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því berskjölduð fyrir skaðlegum lofttegundum. Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera.
  • Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá almannavörnum.
  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
  • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
  • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru berskjaldaðri fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.
Hér er hægt að lesa leiðbeiningar frá embætti landlæknis varðandi loftmengun á gosstöðvum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert