Óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna veikinda við gosstöðvarnar á Reykjanesi nú laust fyrir klukkan tíu.
Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni var þyrla gæslunnar við æfingar skammt frá og er hún nú við gosstöðvarnar. Um er að ræða sjúkraflutninga vegna bráðra veikinda, en ekki fást nánari upplýsingar um málið.