Fimm smit á landamærunum

Fimm greindust með kórónuveirusmit á landamærunum í gær. Tveir þeirra bíða niðurstöðu mótefnamælingar. Eitt smit greindist innanlands í gær og var viðkomandi í sóttkví.

Af landamærasmitunum greindist eitt í fyrri skimun en tvö í seinni skimun. Einn var með mótefni en tveir bíða eins og áður sagði niðurstöðu mótefnamælingar og ekki ljóst á þessari stundu hvort þau eru virk. 

Alls voru tekin 652 sýni á landamærunum í gær en 512 innanlands. 

Alls eru 98 í einangrun vegna Covid-19 á Íslandi í dag og hefur fækkað um fimm frá því á föstudag. Börnum með smit hefur fækkað undanfarið og eru nú alls 22 börn með veiruna.

Þrjú smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 17 smit eru á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og tvö í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. 

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 18 smit. 28 smit eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára. 21 smit er í ald­urs­hópn­um 40-49 ára. Fimm smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára, eitt meðal fólks á sjö­tugs­aldri og þrír á átt­ræðis­aldri eru með Covid-19. 

Nú eru 128 í sóttkví sem er fjölgun frá því fyrir helgi er 111 voru í sóttkví. Á föstudag og laugardag greindust alls þrír með Covid-19 innanlands og af þeim voru tveir utan sóttkvíar. Í skimunarsóttkví eru 1.637.

Núna eru 77 í ein­angr­un á höfuðborg­ar­svæðinu. Þrír eru í ein­angr­un á Suður­nesj­um og 13 á Suður­landi. Tvö smit eru á Aust­ur­landi, eitt á Norður­landi eystra og tvö á Vest­ur­landi.

104 eru í sótt­kví á höfuðborg­ar­svæðinu, 12 á Suður­nesj­um, 7 á Suður­landi og tveir á Aust­ur­landi. Einn er í sóttkví á Norðurlandi vestra og einn á Vesturlandi. Einn er óstaðsett­ur í hús. 

Ný­gengi smita inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 18 síðustu tvær vik­ur og 5,7 á landa­mær­un­um.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert