Fólk varist loftmengun á gosstöðvunum

Eldgosið í Geldingadölum.
Eldgosið í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Börnum, öldruðum, barnshafandi konum og þeim sem hafa undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma er ráðlagt frá því að fara á gosstöðvarnar ef einhver loftmengun er yfirvofandi. Einnig getur verið yfirborðsmengun í jarðvegi, snjó og yfirborðsvatni vegna þungmálma og uppsöfnunar flúors (F). Yfirborðsmengun er mest í næsta nágrenni við gosstöðina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Bannað er að leggja ökutækjum á og við Suðurstrandarveg. Leggja skal bílum á skipulögðum stæðum neðan þjóðvegar.

Í dag er útlit fyrir sunnan 3-8 m/s og berst þá gasmengunin til norðurs, einkum yfir Vatnsleysuströnd og gæti þar náð styrk sem er óhollur fyrir viðkvæma.

„Frá miðnætti til hádegis (00-12) eru engir viðbragðsaðilar á svæðinu til að mæla gasmengun og bregðast við óhöppum. Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir hádegi hafi þetta í huga. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á facebook-síðu lögreglu og á vedur.is, heimasíðu Veðurstofu Íslands,“ segir í tilkynningunni, þar sem bætt er við að svæðið sé ekki fyrir lítil börn. Þau séu viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eru eldri og því berskjölduð fyrir skaðlegum lofttegundum. Einnig er fólk hvatt til að klæða sig vel.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Fólk er hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá almannavörnum. Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.

Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan. Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni

Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru berskjaldaðri fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert