Þrjú smit innanlands utan sóttkvíar

Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og einn er á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Alls eru 93 í einangrun og 147 í sóttkví. Í skimunarsóttkví eru 1.269. Allir þeir sem greindust með smit innanlands voru utan sóttkvíar. 

Alls voru tek­in 679 sýni á landa­mær­un­um í gær en 983 inn­an­lands. 

Á landamærunum greindust þrír við fyrri skimun og einn í seinni skimun. Tveir bíða niðurstöðu mótefnamælingar og einn var með mótefni. Í gær var greint frá fimm smitum á landamærunum en að tveir þeirra biðu niðurstöðu mótefnamælingar. Hún leiddi í ljós að þeir voru báðir með mótefni.

Ný­gengi smita inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 16,1 síðustu tvær vik­ur og 6 á landa­mær­un­um. 

Þrjú smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 16 smit eru á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og tvö í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. 

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 18 smit, 26 smit eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára, 19 smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára, fjögur smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára, tvö meðal fólks á sjö­tugs­aldri og þrír á átt­ræðis­aldri eru með Covid-19.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert