Beint: Opinn fundur fjármálaráðuneytisins

Bjarni Benediktsson flytur erindi á fundinum.
Bjarni Benediktsson flytur erindi á fundinum. Ljósmynd/Aðsend

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, er á meðal þeirra sem flytja erindi á opnum fundi fjármálaráðuneytisins sem hefst klukkan 10. Yfirskrift hans er: Spörum sporin og aukum hagkvæmni með umbótum í opinberri þjónustu.

„Hvernig bætum við opinbera þjónustu og léttum líf almennings á sama tíma og við spörum skattgreiðendum pening? Hvaða hlutverk leika fjárfesting og áhersla á stafræna tækni í þessum efnum? Hvernig á opinber þjónusta að vera til framtíðar?“ Þessum spurningum og fleirum verður svarað á fundinum.

Fjallað verður um hvernig Stafrænt Ísland gjörbreytir samskiptum og upplifun af hinu opinbera. Þá verður rætt hvernig nýta má nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í samfélaginu til að færa þjónustu nær fólki og draga úr sóun. Loks verður fjallað um hvernig spara skal milljarða með nýrri nálgun í innkaupamálum á sama tíma og veitt verður óskert þjónusta og hún gerð umhverfisvænni.

Beint streymi frá fundinum:

Dagskrá fundarins:

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra: Uppfærum stýrikerfið – opinberar umbætur og framtíðarsýn.

Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands: Stafrænt Ísland: Á fleygiferð inn í framtíðina.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara-Connect. Íbúarnir í fyrsta sæti.

Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa: Ávinningur fjölbreyttra innkaupa – ný innkaupastefna ríkisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert