Ein stærsta snekkja heims í Eyjafirði

Melnitsénkó er talinn vera 95. ríkasti maður heims.
Melnitsénkó er talinn vera 95. ríkasti maður heims. Ljósmynd/Arnar Þór Björnsson

Ein stærsta snekkja heims sigldi inn Eyjafjörð í kvöld. Snekkjan, sem nefnist A, er í eigu rússneska viðskiptajöfursins Andrey Melnitsénkó og verður í firðinum í jafnvel nokkrar vikur, að því er fram kemur í umfjöllun Akureyri.net.

Snekkjan ásamt Sleipni, dráttarbáti Akureyrarhafnar.
Snekkjan ásamt Sleipni, dráttarbáti Akureyrarhafnar. Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson

„Snekkjan er 142 metra löng og möstrin eru um 100 metrar á hæð, sem er ástæða þess að hún siglir ekki inn á Pollinn; möstrin geta truflað flugumferð,“ segir í umfjöllun vefjarins.

Melnitsénkó er samkvæmt viðskiptaritinu Forbes talinn 95. ríkasti maður heims, og í sjöunda sæti yfir auðugustu Rússana.

Samkvæmt heimildum Akureyri.net er hann væntanlegur um borð í snekkjuna.

Skútan í Eyjafirði í kvöld.
Skútan í Eyjafirði í kvöld. Ljósmynd/Arnar Þór Björnsson
Möstrin skaga upp úr skútunni.
Möstrin skaga upp úr skútunni. Ljósmynd/Arnar Þór Björnsson
Skipið mun vera komið til að vera í jafnvel nokkrar …
Skipið mun vera komið til að vera í jafnvel nokkrar vikur. Ljósmynd/Arnar Þór Björnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert