Eitt smit innanlands - tveir á sjúkrahúsi

Einn greindist  með kórónuveiruna innanlands í gær og var viðkomandi í sóttkví. Nú eru 83 í einangrun og 199 eru í sóttkví. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og fjölgaði um einn í gær. Eitt smit greindist við seinni skimun á landamærunum. Daginn áður greindust fjórir með Covid-19 á landamærunum og þrír voru með mótefni.

Ný­gengi smita inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 13,9 síðustu tvær vik­ur og 6 á landa­mær­un­um. 

Þrjú smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 14 smit eru á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og eitt í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. 

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 15 smit, 23 smit eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára, 18 smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára, fjög­ur smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára, tvö meðal fólks á sjö­tugs­aldri og þrír á átt­ræðis­aldri eru með Covid-19.

Alls voru tek­in 743 sýni á landa­mær­un­um í gær en 973 inn­an­lands. 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert